Þetta er bara RuGl!!!
Myndasíður
02.06.2006 01:31:35 / litla_ljot

jamm og jæja..........

Jæja þetta kom þá út úr skoðanakönnuninni...........

Á ég að skipta og fara yfir í bloggar.is eða halda mig við það gamla góða?!?!?

Klárlega bloggar.is!!!
42%
Blog.central er best og þú skiptir ekkert!!
 8%
Mér er skítsama........
 8%
Mig langar í epli!

 42%



Ég verð að viðurkenna að þegar að ég setti þessa skoðanakönnun upp þá var ég búin að ná mér í notendanafn á bloggar.is en er svo bara búin að taka hana í notkun núna! Það eru ýmsir kostir og gallar. Kostirnir eru þeir að það eru engir staðfestingakóðar! Gallarnir eru þeir að það er svolítið lítið letur! En ég ætla að prófa ef að mér finnst þetta ömurlegt þá get ég alltaf farið yfir á gömlu blog.central síðuna! :haha:

http://magnead.bloggar.is

Látið ykkur ekki bregða ég ákvað að vera með öðruvísi útlit en allir hinir! ;) hehehe.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 23:15:05 / litla_ljot

Nýtt plan nýtt plan!!!

já ákvað að segja þetta bara hér í staðinn fyrir að kommenta á hinn pistilinn! hehheh

En ég hef fengið að fresta hálskirtla og nefkirtla aðgerðinni þangað til í haust! Ég gat bara alls ekki farið að fá hálfsmánaðar frí í viðbót við hitt hálfsmánaðarfríið mitt þegar að ég fer út, þannig að ég fer bara í röra aðgerðina eða ísetninguna 8.júní og ég þarf ekkert að jafna mig eftir hana þannig séð. Þá þarf ég bara að taka mér einn dag frí. Jáhhh frábært! Veit nú samt ekki alveg með Ýdali verð örugglega að vinna daginn eftir þannig að það er nú ekki útséð með það!

Annars gengur allt bara sinn vanagang......geðveikt stuð í Rifós!

Og við sjáumst!


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 12:45:54 / litla_ljot

köttum(cut) þetta bara allt í burtu!!!

 

Þá er ég mætt hér en og aftur! Á föstudaginn lagði ég í það langa ferðalag að fara til Akureyrar. Heheheh……. En já ætlunin var semsagt að fara til læknis og eftir það að fara í klippingu og litun og strípur bara hele klabbet skomm. Kom bara mjöög ánægð út af Passion með klippinguna semsagt ekki alveg eins ánægð frá lækninum, eða sko ánægð bara kvíðinn.

 

Já kæru vinir nú er svo í pottinn búið að ég þarf að leggjast undir hnífinn. Nú ég er nú orðin svo heyrnarlaus að það á að setja rör í eyrun á mér í svona þúsundasta skiptið þar sem að ég var alltaf með rör hér á yngri árum. Svo ætlar hann að skera úr mér nefkirtilinn bara svona í leiðinni, já og eitt enn þar sem að ég var komin á biðlista þá ætlar hann bara að gera þetta í leiðinni líka skera úr mér hálskirtlana!!

Þannig að það á að setja í mig rör, skera úr mér nefkirtilinn og hálskirtlana allt í einu!

Já og það sem meira er að þessa aðgerð á að gera 8.júní.... þann góða dag! sem er einmitt dagurinn fyrir Ýdalaballið. Þannig að ég missi nú af því!!! Dauð og djöfull!! Svo á ég að vera byrjuð að vinna og get ekkert mætt í vinnu og eitthvað þvílíkt rugl!!!

Ég get ekki beðið! Reyndar er það satt ég get ekki beðið eftir að heyra betur þar sem að ég segi ha eða hvað segirðu í öðru hverju orði og losna við þessa hálskirtla þá losna ég kannski við þessa köfnunartilfinningu og slæmu hálsbólgur og kvef sem að ég fæ oft og er með í margar vikur eða eitthvað og margt fleira í þessum dúr! ;D

 

Í gær skruppum við svo inn á Húsavík ég, pabbi og Unnar að ná í afa og fara með hann heim til að kjósa, sá gamli vildi ólmur koma austur að kjósa svo að við náðum bara í hann! Svo forum við með hann aftur bara um kvöldið! Komum heim og forum að horfa á kosningavökuna……… ég gafst upp kl half 2, þá var ég bara að sofna hérna inn í sofa og mamma og pabbi farin að hrjóta sitt hvorum megin við mig! Hehe……. Svo er bara leti dagur í dag………..held ég………. Nenni allavega ekki að gera rassgat!

 

heyrnarlausa stúlkan með risa hálskirtlana


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 15:04:50 / litla_ljot

daaaginnnn......

Helló

 

Þetta er svona vælu pistill! En ég byrja samt á síðustu helgi ég fór inn á Akureyri á laugardaginn....byrjaði á að fara upp á gamla ganginn minn og hamra á herbergi 104, 106 og 105! Fékk tvö svör, frá Tinnu og Dagný! Hehehe þær voru bara soltið hræddar!hahaha........ svo var ég bara með þeim og hitti fólk og svo fórum við til ömmu Ragnhildar að horfa á Eurovision og svona og komum okkur svo í föt og drifum okkur í partý! ( Við horfðum samt ekki nakin á eurovision við skiptum semsagt um föt) Fórum í partý til Elvars og þar var fólk......fámennt en góðmennt! ;D Svo var ferðinni heitið niður í Sjalla.....ekki komst ég nú strax inn en þegar að ég hafði náð í skilríkin mín komst ég inn! Langaði alveg að sko faðma dyravörðinn átti ekki von á þessu frá honum! En svona er þetta! Og þetta var abra mjög gaman skemmti mér mjög vel! Fór svo bara heim á sunnudaginn!

 

Vinna á mánudag og þriðjudag í Rifós og er búin að vera lasin síðan á mánudag! En harkaði mér nú samt í vinnuna á þriðjudag því að ég þarf að fá frí á föstudag þar sem að ég er að fara inn á Akureyri. Þannig að ég hef bara legið upp í rúmi síðan að ég kom heim úr vinnu á þriðjudag, aumingja ég! Sko ég er svo uppfull af kvefi að ég tala eins og geimvera frá mars og það er enginn heili lengur það er bara hor, svo hósta ég eins og ég hafi reykt í ár og aldir og er stundum við það að kafna!!! Í gær var ég svo líka með hita og beinverki!!!!! ÓGEÐ!!!!!!

 

En allavega.......ég er farin........... hahaha gaman að hugsa til þess að MA ingar eru að byrja í prófum á morgun og ég er búin að vera í sumarfríi í rúmlega 2 vikur!!! HAHAHAHAHAHAHA

 

Hey og hér er annað  http://www.humor.is/Link/view/19821

Ég hélt í alvöru talað að ég myndi bara deyja úr hlátri! Þið vitið ég hósta svo mikið! Þið þekkið mig líka ég er svo mikið kvikindi í mér!!! Þetta er alveg óborganlegt!!!!

Ps. Á maður að halda áfram á blog.central.is eða fara yfir á bloggar.is?!?!


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 13:19:34 / litla_ljot

...

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún mamma mín hún á afmæli í daaaag!! jeeiiiijjjjj.........

Mamma er frábær

Þetta var það eina sem að ég ætlaði að segja..........


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 19:08:43 / litla_ljot

ég skæri þér hjartað úr með skeið........jahh ef þú bara hefðir hjarta!!! hahhh

Hæ!

Já ég er alveg eiturhress.........en ég var það ekki í dag! Nei þannig var nú það að ég fór á fætur kl. 8 til að kíkja á þessar rollur sem ætla bara ekkert að bera!!! Þannig að ég fór nú bara heim og skreið upp í rúm aftur! Eftir dáóða stund kom svo hann Unnar Þór minn og skreið undir sæng og sofnaði sem hann gerir nú venjulega ekki heldur kúrir bara í smástund! En nei minn sofnaði bara og lét nú ekkert lítið fara fyrir sér þar sem að ég var í 90 cm breiðu rúmi sem að mér finnst langt frá því að vera breytt þá hafði hann örugglega svona 55 cm og hann 35 cm en eins og allir vita er ég svona 4s sinnum eða eitthvað stærri og feitari en hann! Ekki nóg meðþað heldur hafði hann lappirnar uppá mér og tróð hendinni svona í hálsinn á mér!! Þannig að ekki svaf ég mikið....... svo fór hann loksins! Ég er ekki vön að segja þetta við litla bróður minn en þegar að ég vil sofa þá já nóg með það! þannig að ég svaf til eitt.........vaknaði eiginlega í brjáluðu skapi hahaha........fór í tölvu og eins gott fyrir fólk að það talaði ekki við mig á msn..........hehe úps! Semsagt búin að vera bara brjáluð í allan dag!! hehehheeh en ég hlæ bara að því núna!! :D

Annars drullaði Silvía Nótt upp á bak í gær! og fannst mér bara gott að hún komst ekki áfram....... alveg búin að verða okkur nógu mikið til skammar með sínu yfirdrulli á aðra keppendur og hroka og dónaskap við alla þarna úti! Eða það finnst mér!

Svo er það bara Akureyri á morgun.....jeiiijjjjjj........ætla mér að vera komin þangað bara um miðjan dag helst! jájá eyða svolitlum tíma með þessum elskum! Svo átti nú að halda partý en ekkert varð nú að því! þannig að nú fer ég bara að leita að partýi og treð mér inn á einhvern!! ;) haha passið ykkur............. neinei svo er það bara Sjallinn!! heyrðu félagi þekkjumst við?!? nei ég á nú bara mánuð eftir sko! jájá....... Ég er búin að vera að æfa mig fyrir framan spegil núna síðustu daga sko!!! hehh......nei ég er að grínast! það er nú málið þegar að ég er að grínast þá veit ég hvenær á að stoppa ólíkt sumum öðrum!!!!!!

En þetta er svosem orðið ágætt.......... ég held með Finnlandi og Rúmeníu........ tornero tornero!!!

Farin.........


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 17:14:52 / litla_ljot

ís og grjót í hjartastað....

Fólk er fífl..... sumt meira en annað!

 

Annars er ósköp lítið að frétta af mér bara búin að vera að vinna nema í dag, letilíf í dag er reyndar að fara upp í fjárhús að stússa eitthvað! Jú og ég ryksugaði bílinn minn! Þá á ég bara eftir að þrífa hann að utan! Spurning hvenær það verður en það verður bara að koma betra veður í það sko! Svo er bara vinna á morgun og föstudagurinn er óákveðin..... svo er bara stefnan tekin á Akureyri city á laugardaginn þar ætla ég mér að fara í eurovision partý sem að Hemmi ætlaði að redda þó að hann muni ekkert eftir því, og svo á það að vera Sjallinn... Jónsi og félagar ætla að halda uppi stuðinu þar spurning hvort að maður komist þar inn, kommon það verður bara mánuður í afmælið mitt!!!!  Nú og ef ekki þá fer ég í fýlu og upp í rúmið hennar Ragnhildar og sef þar á meðan að allir hinir skemmta sér í Sjallanum!! En við skulum nú ekkert ákveða svona neitt fyrir fram.....kannski verða þeir góðir og sætir og hleypa mér inn! ;D

 

Annars fékk ég óskemmtilegar fréttir í dag....pabbi hringdi í mig og sagði mér að ungur frændi minn hefði dáið í nótt eða morgun. Ég þekkti hann ekki neitt og hef sárasjaldan hitt hann en samt fær maður alveg fyrir hjartað þar sem að hann var ekki nema um 14 ára gamall var bara að fermast núna rétt um daginn. Mér finnst lífið alltaf svo óréttlátt þegar að það tekur svona ungt fólk frá okkur. En þeir deyja ungir sem guðirnir elska.

Mig langar að votta foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum innilega samúð mína.

Hvíl í friði


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 22:48:46 / litla_ljot

Komin heim í heiðardalinn.......

Daginn....

Þá hef ég kvatt Akureyrina að sinni, ekki veit ég hvenær ég mun snúa þangað aftur þá meina ég til að dvelja þar en auðvitað fer maður þangað til að hitta fólkið og djamma og svona! ;) heheheh........ En ég kláraði síðasta prófið mitt á miðvikudaginn kl. 15.00 og þar með var ég komin í sumarfrí. Þá byrjaði ég að pakka saman föggum mínum og tók svo til við að þrífa herbergið mitt hátt og lágt, mín ástkæra Ragnhildur hjálpaði mér helling og þreif með mér. Að því loknu  tók ég til við að kveðja og byrjaði ég nú á því sem tók minna á og endaði á því átakanlegasta sambýlingum mínum síðustu 4 mánuði sem voru Tinna, Ragnhildur og Dagný! Og það komu tár og fleiri tár og en fleiri tár! Og þar með var ég farin úr herbergi 102 Helgafelli fyrir fullt og allt! **grenj** Renndi við í Löngumýri og sagði bless við Eygló og svo út úr bænum! Og þá var kl.22.10!

 

Í gær fór ég svo bara að vinna í Rifós og vann til rúmlega 7! Stuuð... það var reyndar bara býsna gaman sko ég, Wong og Ágústa í góðu geymi! Hahaha Fór svo aftur í dag og var til 5! Það var ekki eins gaman!!!! ;( úffff en jájá nóg um það........

 

Sauðburður er byrjaður og byrjaði hann nú ekki betur en svo að rollan mín var fyrst með lambakóng og drottningu og þau drápust bæði!! Fráááb en svona er þetta bara þeir mega missa sem eiga segi ég alltaf!

 

Annars verð ég bara að vinna núna í Rifós og svo fer ég að vinna í Þjóðgarðinum 6.júní! Já ég veit tónleikarnir hans Bubba eru þá 060606 ooog mig langar ÓGEÐSLEGA mikið á þá!!! Ooooohhhhhhhh eeeen eins og mamma mín sagði við mig Magnea Dröfn!!! Þú getur bara ekki gert allt! Ég: **snökt** nei ég veit! Hehehe........

 

Annars held ég að þetta sé bara orðið gott í bili ég ætla ekkert að minnast á það hvernig mér gekk í prófunum enda er ég komin með ógeð á skólatali, einkunnum og þegar að fólk er að ráðleggja mér og eitthvað! Vissi ekki alveg hvort að ég átti að móðgast eða deyja úr hlátri framan í mann í dag en hann talaði alveg ROSALEGA mikið um þetta við mig, talaði um athyglisbrest, ofvirkni og lesblindu og sagði að margt fólk sem hefði ekki getað lært hefði svo verið sett á rítalín og þá hefði það bara getað lært eins og ég veit ekki hvað! JÁ PANT ÞAÐ!!!! Nei, ég er ekki lesblind ég hef reyndar spurt mömmu hvort að hún hafi ekki pælt í því að tékka hvort að ég sé með athyglisbrest! Hahh svolítið klikkuð svona, og ofvirk?!? Humm veit ekki kannski, eða bara svona létt geggjuð manneskja sem er ógeðslega löt og hefur ekki nokkurn einasta áhuga á að læra!!! Jahh maður spyr sig!

 

Segjum þetta gott í bili

 

Magnea rítalín


» 17 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 16:37:57 / litla_ljot

hæ.......
*Stelpurnar Tinna,Dagný,Eygló,Ragnhildur og Arna komu heim til mín um helgina
*það var gaman
* Ég er komin inn á Akureyri aftur
*Er í prófum
* Búin með eitt

bæææææ................

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 19:30:50 / litla_ljot

jájá

Ástæðan fyrir því að ég blogga nánast ekki neitt núna er að ég er ekki með netið á vistinni, stelst bara svona annað slagið hjá Ragnhildi eða Tinnu. Annars hér hafið þið einhvern lista sem að ég svaraði í fljótu bragði......laaaater

1. Aldrei í lífi mínu:  Myndi ég neyta eiturlyfja

2. Þegar ég var fimm ára: var ég í leikskóla í Skúlagarði

3. Menntaskóla árin voru: jahh það sem að er búið af þeim hefur verið mjöööög gaman félagslega séð! Gleymum bara námslegu hliðinni hún hefur ekkert verið svo góð! ;)

4. Ég hitti einu sinni: mann sem þekkir mann sem þekkir konu og hún þekkir mann sem þekkir stelpu sem að þekkir mann sem þekkir mann sem þekkir konu sem þekkir mann sem er bróðir hans.

5. Einu sinni þegar ég var á bar: var ógeðslegur kall þar

6. Síðastliðna nótt: Svaf ég í rúminu mínu, fast!  

7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: Verður heima hjá mér (það er sko kirkja þar)

8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: vegg

9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: vask

10.Þegar ég verð gömul/gamall: verð ég geeeðveikt hress, því að jú hláturinn lengir lífið og hvað hef ég gert annað síðastliðin ár en að hlæja! ahahahahahah

11. Um þetta leyti á næsta ári: Verð ég sennilega í Sölden eða nýkomin frá Sölden í Austurríki

12. Betra nafn fyrir mig væri: veit ekki.......samkvæmt matartímanum áðan bassinn eða eitthvað þess háttar!

13. Ég á erfitt með að skilja: stærðfræði og margt margt fleira

14. Þú veist mér líkar vel við þig ef:  sennilega ef að ég tala við þig og er brosandi
 
15. Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri:
ekki hugmynd, kannski bara ég!;D

16. Farðu eftir ráðum mínum: neinei ekkert svoleiðis

17. Uppáhalds morgunmaturinn minn er: humm.....bara kornflex með rúsínum! Í alvöru geðveikt gott!

18. Afhverju myndir þú hata mig: Ef þú hefðir gert mér eða mínum eitthvað, eða værir bara óendanlega leiðinleg/ur.

19. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef: Ef að ég hefði edasemdir eða elskaði viðkomandi ekki.

20. Heimurinn mætti alveg vera án: Viðjóðs og hálfvita

21. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að: steikja á mér hausinn

22. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: kveikjarar. Hættið að reykja og notið eldspýtur til að kveikja á kertum ef þið þurfið þess.

23. Ef ég geri e-ð vel, er það: mjög sjaldgæft, og mjög sjaldgæft að það sé í tengslum við skólann.

24. Myndin sem ég felli tár yfir er: jahhh.........segjum bara Notebook eða eitthvað!  

 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 17:17:37 / litla_ljot

Hvað ertu að segja.....

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Bíddubíddu.........er þetta ég?!? Ég sé mig nú í sumu þarna en ég veit ekki með hitt!

Annars er þetta stolið af síðunni hjá Baldri og þar eru allar hinar spárnar getið farið þangað til að sjá þær!  http://blog.central.is/baldur

Annars er ég að fara að bruna inn á Akureyri í þessum töluðu orðum........


» 14 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 15:50:52 / litla_ljot

Nú þú ert bara 17 ára kélla?!? hehh jújú það er ég*hjálp*

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann pabbi minn......hann á afmæli í dag!!!!

 

Já minn ástkæri faðir á afmæli í dag er karlinn bara orðinn ekki meira né minna 39 ára. Það er bara ár í stóóórafmæli......hehehe gaman að stríða honum á þessu! Veit að hann les bloggið mitt þannig að ég elska þig pabbi minn! Bestur!!

 

Eeeeen í gær þá komu nú gestir hingað til okkar Einar Valgeir frændi minn að sunnan og Karen konan hans komu hingað aðeins og svo komu Þorbjörg, Jón og Sandra Rún og gista hérna í 2 nætur eða svo! Eða Reynda hinum megin í gamla húsinu en samt! Svo í gærkvöldi var maður nú bara búin að hreiðra um sig fyrir framan sjónvarpið orðin syfjuð og svona.......þá hringir Hjalti í mig og spyr mig hvort ég vilji keyra sig og Svein í Skúlagarð á ball.....ég var náttúrulega alveg til í það, get ekki sagt nei þegar að ég er beðin svona fallega! Hahahaha........En þá ákvað ég bara að skella mér líka þar sem að ég heyrði að ég mætti fara inn þar sem að ég er 18 á árinu og er það nú líka bara eftir 2 mánuði. Mín var nú ekki lengi að taka sig til og dreif mig niðureftir fyllti svo bílinn af fólki og dreif mig á ball......sleppi aðeins úr svona þar sem að ég var beðin að keyra fleiri og fékk pabba minn að keyra þau þar sem að þau voru allt of mörg og eitthvað blabla....... Í Skúlagarði var slatti af fólki svona! Helmigurinn voru einhverjir Húsvíkingar!!!!! Ekki það að þeir séu eitthvað svo slæmir  hheheh........bara fyndið að þeir keyrðu frá Húsavík í Skúlagarð á ball! En þetta var bara ágætis skemmtun ég allavega skemmti mér mjög vel og hefði sko getað dansað heillengi í viðbót! ;)Þannig að ég keyrði bara eitthvað fólk heim og svona og kom svo heim......þá var kl.5! En ég sofnaði nú eitthvað seinna út af símanum svo nennti ég ekki að svara honum lengur og fór bara að sofa!! Það er alveg merkilegt hvað ég á erfitt með að segja nei..... í alvöru talað ég bara get það ekki!Nema jú ryendar ef að ég er svo alveg harðákveðin þá get ég sko sagt nei (móðgaði held ég einmitt einn húsvíking) og þá get ég bara stundum verið dónaleg og þá fer fólk í fýlu eða móðgast og segir eitthvað ljótt og fær svo kanski móral og svona ýmislegt skemmtilegt!!! hehhh..........

 

Þetta er ágætt í bili!! ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 17:11:35 / litla_ljot

Frjáls eins og fuglinn..........

Þá er komið að öpdeiti! Aðallega gert fyrir elskuna mína hana Dagný spanjólu þar sem að hún hefur kvartað örlítið! Hehehe........ Þannig er nú bara mál með vexti að ég hef bara engann veginn nennt að hanga í tölvu síðan að ég kom heim! En hér kemur síðasta vika,  reyni að hafa þetta eins stutt og hægt er!

 

Á föstudaginn lagði ég af stað heim á prezunni minni laaangt á eftir áætlun með Hörpu og Snæfríði innanborðs. Ég hitti Böðvar og við ákváðum að vera í samfloti og Jónas líka. Þetta var rosalegt samflot þar sem að þeir keyrðu eins og anskotar alla leið að Víkurskarði en þá kom ég að Jónasi föstum í Víkurskarðinu, jájá kallinn spólaði bara eins og að honum væri borgað fyrir það. Nú ég fór nú bara fram úr honum og flutningabílnum sem var fyrir framan hann og fór þetta bara leikandi létt að sjálfsögðu enda lætur imprezan ekki stoppa sig. Hitti Böðvar uppi á skarði og við héldum bara áfram. Heyrði í Jónasi og hann sagði mér þá að Bimbóin hefði fest sig líka. Ussuss......þá er nú betra að vera bara á fjórhjóladrifnum bíl mæli með subaruimprezu sko!!! :D Ég kom svo við hjá afa mínum á Húsavík bara rétt að segja hæ og bæ og fór svo bara heim. Bjarki kom svo og við horfðum á idol sem að fór nú ágætlega ég hélt nú samt aðeins meira með Ínu en hún er alveg búin að koma sér á framfæri og Snorri var bara góður.

 

Slakaði nú bara á á laugardag og sunnudag Bjarki,Magnús og Hilmir komu svo á sunnudagskvöld þar sem að foreldrar okkar voru eitthvað á bæjarflakki.

 

Á mánudag fór ég svo að vinna í Rifós, alltaf gaman að rifja það upp! Hehehe....... Þriðjudagur einkenndist af leti fór nú samt í fjárhúsin að gefa og svona......jájá dugnaðurinn alveg í hámarki! Hahahaha..............Á miðvikudag fór ég svo aftur að vinna í Rifós og vorum við búin með aðgerðina fyrir hádegi en eftir hádegi fóru hinir að pakka en ekki ég og ekki Wong! Við fórum nefnilega að þrífa af því að aðalmanneskjan hún Ragnhildur stakk af. Þannig að við Wong þrifum og ég verð nú að segja það að sjaldan hefur verið eins gaman að þrífa og á miðvikudag...... þar sem að við erum báðar mjög litlar og Wong er minni en ég og hún var með háþrýstidæluna og réði stundum ekkert við hana eða hvert hún var að sprauta og allt fór framan í hana eða mig...... Þá hlógum við okkur alveg máttlausar. Hehehehhehe.......skemmtilegt það! Vonum bara að það hafi verið ágætlega þrifið hjá okkur! Ehhhe....... Heyrðu svo fór ég nú eftir vinnu upp í Ásbyrgi að taka bensín þar sem að bíllinn min var örðinn algjörlega bensínlaus. Og heyrðu á mánudaginn þá fór ég nefnilega upp í Ásbyrgi og ætlaði að taka bensín en gleymdi kortinu mínu flott Magnea flott!!! Þá kostaði líterinn af bensíni 122, eitthvað 

EEEEENNN Í GÆR KOSTAÐI HANN 125,8 KRÓNUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Á föstudaginn á ob eða ób á Akureyri kostaði hann 117, eitthvað!!!

Og þetta fer sífellt hækkandi!!!  Í anskotans bænum helvítis verðbólga........manni blæðir svo um munar!!!

 

En þetta er orðið ágætt í bili!!!

 

Kveðja Magnea Dröfn

 

Ps. Hvað á að gera um páskana?!? Endilega svara þessu


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 22:02:44 / litla_ljot

Spegilmyndir á votu malbiki.............öskur trúðsins í nóttinni

Hæhæ…. Langt síðan síðast og það verður ekki mikið um blogg á næstunni held ég þar sem að ég er ekki með netið á vistinni núna. En ég nenni ekki að borga netið fyrir einhverjar tvær vikur eða eitthvað þannig að nú er ég bara svona sníkjudýr um allt!!

En á síðasta fimmtudag fór ég í mat til hennar Svönu minnar. En hún átti nefnilega afmæli 19 ára kéllingin og bauð mér,Örnu og Ingu og við vorum þarna eitthvað að borða og rugla fram eftir kvöldi. Hahaha teknar voru myndir á webcam sumir voru hressari en aðrir *hóst*Arna*hóst* hehehehe……. En ég var allavega alveg að springa eftir þetta og fór svo heim um hálf 11 minnir mig að skrifa ritgerð sem gekk alls ekki vel.

Á föstudaginn var ég svo bara í ruglinu eitthvað, og hugsaði allann daginn hvort að ég ætti að vera á Akureyri um helgina eða ekki. Pabbi var semsagt að koma að sunnan og þannig en Egó var líka í Sjallanum um helgina. Ooooog sem betur fer ákvað ég að vera á Akureyri um helgina. En svo fór ég til Örnu minnar sem var lasin að horfa á idolið…….og fjúfff það var spennandi!! Áfram Ína!!! Svo hélt ég áfram að skila ritgerð alveg í stressksti því að ég ætlaði að reyna að skila ritgerðinni fyrir 12 heim til kennarans. En það tókst ekki ég brunaði af stað átti að fra í Skarðshlíð eitthvað en ég var svo orðin svo tóm í höfðinu að ég fann þetta ekki. Þannig að ég fór bara með þetta daginn eftir. Vona bara að ég hafi farið á réttan stað því að póstkassinn var ekki merktur! Eeeen já…….svo á laugardagskvöldið fórum við til Eyglóar ég,Ragnhildur, Tinna og Dagný og horfum á con air og fengum geeeðveikt góða ídýfu. ;D svo stakk ég af að fara taka mig til……..svo ákváðu stelpurnar að fara út og við fórum í partý hjá vini Hemma og það var hitað upp fyrir Egó! Svo fórum við niður í Sjalla og það var vesenast eitthvað. En ég komst inn! Og það var geeeðveikt gaman!!! Ég skemmti mér geðveikt vel og hitti slatta af fólki og það var bara geggjað! Ég náttúrulega elska Bubba! Alltaf flottur kallinn!

Sunnudagurinn var bara tekinn rólega og farið hingað og þangað um vistina að rifja upp skemmtileg móment þessa nótt! Skemmtilegast var sennilega þegar að ég og Dagný vorum að koma Hemma í rúmið!! Hahahaha því verður seint gleymt! En núna get ég bara ekki beðið eftir því að komast í páskafrí aaaalveg að deyja sko! Svo er nú farið að spá vondu veðri næstu daga……en ég kemst allt það sem að ég ætla mér á prezunni minni! Hahhh…….. En ég er farin þetta er orðið alveg nóg! sííjúúúú


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 20:16:20 / litla_ljot

Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti!!!

Hvaað er í gangi Magnea?

 

Ég á að vera að skrifa ritgerð en finn mér alltaf eitthvað annað að gera. Hummmm...... fráb eins og ég myndi segja, en ég held að maður megi ekki skrifa það svoleiðis. Var í íslensku í dag og ég verð að segja að þetta var bara fínasti tími skal ég segja ykkur. Við vorum semsagt að byrja í málsögu og vorum að tala um mállýskur og orðaforða og beygingarhætti og þess háttar. Þar lærði ég meðal annars það að ég hef alla tíð skrifað tippi vitlaust! Fyrir utan núna en ég vildi hafa það með y (hvernig skrifar maður y? Upsilon, ufsilon? Waaas?)  en já það er semsagt með einföldu því að ef það væri með y þá væri það dregið af toppur, sem að er víst ekki rétt. Heehehe.............

Við ræddum einnig hvernig Ólafsfirðingar og Siglfirðingar tala þarna með bíllinn Guðmundar!! Sem að mér finnst pínu fáránlegt þar sem að ég segi að sjálfsögðu bíllinn hans Guðmundar!

 

En við fengum svona skemmtilegt blað með útúrsnúningum og nýyrðum, og ég verð að segja að það var ansi skemmtilegt sumt sem að stóð á því blaði. Mest megnis var þetta nú eitthvað svona neðan mittis en eitt orð fannst mér þó nokkuð sniðugt og voru þau reyndar all mörg en það var orðið skautahlaupari. Skautahlaupari er annað orð yfir fjöllyndann karlmann. Svo var orð eins og undandráttur, hleypa brúnum, hangikjöt, dráttarkúla, riðvörn, handriðið og dráttarvél svo eitthvað sé nefnt.

 

Ég fór út í gær. Það var gaman. Ég, Védís og Ragnhildur fundum börnin í okkur og fórum út að leika. Hoppuðum um eins og fífl, þær grófu mig niður, hoppa í heljarstökk, standa undir tré og láta snjóinn falla yfir okkur, svo komu Jónas og Sveinbjörn elskurnar og kaffærðu okkur. Það var rosa gott.......... Gettu betur liðið í MA hafði líka gaman af en þeir lágu allir á gluggunum að horfa. Svo fóru strákarnir, þá tókum við stelpurnar á það ráð að grafa bílinn hans Sveinbjörns en þeir sáu okkur og komu út og Atli þá með þeim og réðust á okkur í skaflana á planinu það tók nú tímann sinn. Svo fóru þeir þá stálumst við aftur að bílnum og grófum aðeins undir hann og svona..........hehehehheheh........... Enda tók það Sveinbjörn langan tíma í dag að losa sig, en það bitnaði því miður allt á Ragnhildi því að hann og Þór tóku á það ráð að hella vatni í rúmið hennar, á koddann og sængina og allt þannig að allt er rennblautt, helltu tóbaki yfir fataskápinn hennar og losuðu í mjólkurfernuna hennar!!! Já takk fyrir pent! Ég hjálpaði henni nú að ryksuga og dusta úr skápnum og svona! Greyið! Skamm strákar!

 

En já svo er ég bara búin að vera fattiði bjargvættur í dag! Keyra alla út um allt þar sem að ég er náttúrulega á aðal bílnum!! En þessi elska fer sko allt sem að ég ætla mér! Jájá.......  Þar sem að Akureyri er á bólakafi í snjó...... eða það er að minnsta kosti anskoti mikið af snjó hérna!!!

 

Skooooo ógeðslega langt blogg af því að ég á að vera skrifa ritgerð!!! FJANDINN

 

Kommentið elskurnar :D

 

Preezan kveður ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12